|
||||||||||||||||
|
Staðsetning
Íbúðin er í Königstein sem er fræg heilsuborg í héraðinu Taunus u.þ.b. 18 km vestur af Frankfurt. Húsið stendur á rólegum stað nálægt skóginum en er samt í nálægð stórborgarinnar. Lestarstð er aðeins í 1 mín. göngufæri frá íbúðinni og sú lest fer á aðalbrautarstöðina í Frankfurt á 30 mín. fresti. Lítil verslun er í göngufæri "kaupmaðurinn á horninu" og er opin alla daga vikunnar og er þar hægt að kaupa helstu nauðsynjar. Veitingahús eru einnig í göngufæri. Nóg af bílastæðum eru við húsið.
Við bjóðum uppá gott umhverfi í fallegri borg. Verðið er lægra en á sambærilegu hótelherbergi en þagindin og möguleikarnir mun meiri.
Lýsing íbúðar
Hvort sem þú ert einn eða með alla fjölskylduna ertu hjartanlega velkomin. Rúm eru fyrir 4 fullorðna. Ungbarnarúm eftir þörfum. Íbúin er reyklaus og búin öllum hugsanlegum þægindum.
Íbúin sem er 50 fm samanstendur af eldhúsi sem er útbúið með öllum helstu eldhústækjum eins og ísskáp með frystihólfi, eldavél með bakarofni, örbylgjuofn auk annarra smátækja. þvottavél með innbyggðum þurrkara.
Stofan með sófasetti, borðstofuborði og stólum, sjónvarpi, vídeótæki, DVD spilara og geisladiskatæki.
Svefnherbergið er með tvíbreiðu rúmi stærð 180cm x 200cm, fataskáp.
Baðherbergið er með sturtu.
Nóg er af handkæðum og rúmfatnaði.
Verðu
Íbúðina er hægt að leigja hvort sem er í nokkra daga, vikur eða mánuði.
Fyrir einn sólarhring 90 € Fyrir 2 - 4 gistinætur 75 € hver nótt Fyrir 5 - 6 gistinætur 68 € hver nótt Vikan kostar 448 € (samsvarar 64 € nóttin)
Lengri dvöl er eftir samkomulagi. Verðið er alltaf sama allt árið líka á tímum þegar aðrir hækka eins og þegar sýningar eru í Frankfurt.
Innifalið í verði er lokaþrif, rafmagn, vatn og hiti. Við bjóðum einnig uppá eftir samkomulagi að keyra og/eða sækja á flugvöll eða brautarstöð í Frankfurt gegn aukaverði. Við leitumst við að veita alla mögulega aðstoð sem hugsast getur ef þörf er.
Verantwortlich für den Inhalt dieser Seite ist ausschließlich der Autor dieser Homepage, kontaktierbar über dieses Formular! |
|||||||||||||||